07 september, 2011

Eyjafjallajökull

Eyfi þurfti að fara í vinnuferð núna í lok ágúst og vantaði vinnudýr svo hann kippti mér með enda sá fyrir skemmtilega ferð. Við slengdum strákunum í pössum með næstum engum fyrirvara til ofurÁsuömmu og afaÓla og brunuðum austur á miðvikudagskvöldi. Árla fimmtudagsmorguns var lagt af stað upp á snjóbíl sem tók nú sinn tíma en síðan íssjármældum við öskjuna í Eyjafjallajökli og nutum lífsins í geggjuðu veðri. Komum síðan niður af jökli að kveldi og vorum komin í bæinn eitthvað aðeins eftir miðnætti. Læt myndirnar tala sínu máli...








Gosstöðvarnar frá því 2010

8 athugasemdir:

Nafnlaus sagði...

Æðisleg sólgleraugu ;)

Eyfi

Bjarnheiður sagði...

Vá!

joklablogg sagði...

Ég tek þessu "vá"-i sem vá á jökulinn frekar en vái á sólgleraugun sem Eyfi var svo vinsamlegur að benda á. Ég vona að landslagið hirði megnið af athyglinni ;)

Linda sagði...

Sem sérleg áhugamanneskja um jarð- og landafræði tók ég nú varla eftir því að þú værir inni á myndinni;) djók...en að öllu gríni slepptu þá tók ég nú aðallega eftir því hvað þú ert í fallegri peysu:)

Nafnlaus sagði...

Já hver prjónaði hana nú aftur? Gleraugun smellpassa við peysuna. Gaman að sjá gíginn flottar myndir.
Ása amma

Nafnlaus sagði...

Æðislegar myndir af flottri náttúru! Sérstaklega gleraugunum :)

Gunnhildur :)

Nafnlaus sagði...

Geggjað! Fóruð þið með Hlyni Skagfjörð?

Flott peysa, flott gleraugu, flott landslag, flottar græjur, flott pæja :)
þorbjörg.

joklablogg sagði...

Hehe já Þorbjörg mér finnst klifurbelti mjög kúl græjur. Það kom ekki fram hér en íssjárgræjan okkar var líka mjög flott, hún var dregin áfram á blárri snjóþotu í eigu Óla Kalmans og það svínvirkaði!