13 september, 2011

Afrakstursmyndir - kojan álagsprófuð

Ég setti ægilegan montstatus á fésbókina en fannst allt í einu að það væri hálfglatað að hafa aldrei myndir til að sýna útkomurnar svo ég ákvað að setja þetta hér.

Kojan var álagsprófuð í fyrradag þar sem hún stóð á miðju stofugólfinu. Úlfar Jökull tók að sér að framkvæma prófið, alveg óumbeðin og af einskærum áhuga. Hans mestu heilabrot höfðu verið um hvernig stiginn yrði og hann tilkynnti mér þegar hann sá stigann að stiginn væri alveg eins og hann vildi hafa hann -líklega eins gott! Álagsprófið tók hátt í klukkutíma og fólst í að klifra upp og niður stigann að innanverðu og utanverðu og hanga og/eða standa á sem flestum spýtum. Niðurstaðan var mjög góð, þessi koja er rosa massíf og lítur út fyrir að þola ýmislegt...



Þriðja parið af svona inniskóm sem ég geri núna í september, fyrstu voru hobbitalegir í meira lagi, aðra fékk Úlfar Jökull mjög glaður og þessa þriðju ætla ég að eiga líka. Fjórðu verða svo handa Óla Kalmani næstu daga. Uppskriftin var upphaflega einhver útlensk uppskrift af netinu en hún var glötuð svo ég breytti þessu eftir mínu höfði og þróaði.



Krækiberjasaftskammturinn fyrir komandi vetur er kominn á flöskur:

3 athugasemdir:

Nafnlaus sagði...

GLÆSILEG koja :) Nú veit ég hvert ég leita næst þegar mig vantar rúm!! Og flottir inniskór! Kv. Oddný

Nafnlaus sagði...

Mér finnst best að ÚJE er berrasaður við þessar prófanir. hahah!
Kv. Regína

Nafnlaus sagði...

Æðisleg koja Auður myndarlega!