Ég er orðin eitthvað svo föst í því að ég geti ekki bloggað nema að ég hafi myndir. Nú hef ég engar myndir til taks en ákvað samt að henda inn einni færslu, mest fyrir mig :)
Tvö ágæt ÚJE orð:
himúin = hinu megin slegið saman í eitt orð
foga = þvo (einfaldlega af því að f og þ hljómar frekar svipað í upphafi orðs og þegar maður heyrði ekki mikið sökum vökva í eyrum)
Ég er byrjuð að vinna á fullu, en tómstundaheilinn minn sýnir enga tillitsemi og mig langar að prjóna og sauma og stússast í myndum allan daginn! Ég er samt alltaf með eitthvað á prjónunum og plana að breyta einni skyrtu sem ég á og líka þarf ég að finna mér næsta málningarverkefni... En ég er búin að gera oggu ponsu rifsberjasultu og tvær gerðir af bláberjasultu og týna nokkra sveppi til að eiga til vetrarins.
30 ágúst, 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
6 athugasemdir:
Alltaf gaman að fá blogg!! Mikið rosalega ertu dugleg... ég er meira í því að fresta sultugerð og öðru fram á næsta haust! Annars sá ÞNÁ Hallgrímskirkju í gær og talaði um vinnuna hans Úlfars... sumu verður ekki breytt!! Sjáumst, Oddný
Það verður að setja mynd af blússunni sem einu sinni var skyrtan hans Eyfa. Ása amma
Af hverju er ekki hægt að setja inn ath með nafni á bloggið þitt er það einhver stilling sem er ekki í lagi?
jiii hvað þetta er yndisleg síða ..og hvað þið eruð yndisleg fjölskylda! Mikið er ég glöð yfir að við skyldum fá að kynnast í sumar...sem mæður ..og vióluleikarar ásamt fl.. Hjartans kv og sjúmst sem fyrst! xxx Dísa
Það er engin lognmolla hjá þér Auður mín frekar en fyrri daginn, frétti að þú værir að kenna honum Brynjari mági mínum jarðfræði, annars sofnaði Svava í jarðfræðitíma 2 hjá Friðriki Degi, "sjaldan fellur eplið langt frá systur sinni";)
Yndislegt að vera ungur og fullur orku og áhuga! Greinilegt að ÚJE hefur erft eitthvað frá mömmu sinni :-)
þorbjörg.
Yndislegt að vera ungur og fullur orku og áhuga! Greinilegt að ÚJE hefur erft eitthvað frá mömmu sinni :-)
þorbjörg.
Sendu inn athugasemd