08 júlí, 2011

Kirtlataka og rör

Jæja! Nú er lokið margra vikna (ef ekki mánaða) tímabili líkamlegrar heyrnaskerðingar hjá Úlfari Jökli. Þessi líkamlega heyrnarskerðing lýsti sér í þúsund og trilljón "ha?" og "hvað segirðu?" sem við Eyfi og ömmurnar og leikskólinn og allir voru orðnir dálítið þreyttir á (fyrir utan frekar háværa hegðun og háværan talanda). Í gær fór hann neflilega í eina litla svæfingu þar sem nefkirtlarnir voru teknir vegna nefmælgi og hrota og rör voru sett í eyrum því þau voru stútfull af slími og vökva, án þess að við höfum nokkuð orðið vör við neitt eyrnavesen hjá honum. Eftir stendur andleg eða "selectíf" heyrnaskerðing en hann er alls ekki sá eini á sjafnó sem þjáist af henni og vel getur verið að Úlfar hafi erft hana frá einhverjum (lesist pabba sínum!).

Þess má nærri geta að Úlfar Jökull sá sér ekki fært að vera rólegur og jafna sig eftir svæfingu og aðgerð nema í um 1 klst eða svo og þá var hann kominn út á tún og farinn að hlaupa. Hann átti víst ekki að fara í leikskólann í dag en kl.10:30 gafst ég upp á að hafa hann heima hlaupandi upp um allt og hendandi sængum og fór með hann á Grænuborg svo ég gæti málað smá því við erum að mála svefnherbergið okkar :)

En í gærkvöldi fékk hann að tala við Ásu ömmu sína í síma og það sem litli snúðurinn þurfti að segja henni var: "Amma, núna heyri ég!!!"

3 athugasemdir:

Krunka sagði...

Þessi hetja og ofurbolti, hann er ótrúlegur :) Ég þurfti að ath dagsetningar til að vera viss um að ég væri að lesa rétt því ekki var að sjá á honum að hann hefði verið í aðgerð stuttu fyrir útielguna, ótrúlegur :)
Skemmtilegt það sem hann sagði við ömmuna, eftir að nefnkirtlarnir voru teknir úr mér gat ég loksins farið að hreyfa mig og þá kom svona svipuð setning "mamma, ég gat hlaupið alla leið til frænku!!" :)

Ása amma sagði...

Aldeilis munur á Úlfari Jökli eftir að hann fór að heyra svona vel. Bara ekkert ha. Stórkostlegt

Oddný sagði...

Skemmtileg færsla, gott að Úlfar heyri betur núna :) Takk kærlega fyrir helgina, það fyrsta sem Þórdís sagði þegar hún vaknaði var "hvar er Úlfar?"! Sjáumst sem fyrst.